Kærleiksland

Trúarlega bloggið. Færslur þrisvar í viku, á sunnudögum, þriðjudögum og fimmtudögum kl. 21:03

þriðjudagur, janúar 13, 2004

Veðurhorfur á landinu næsta sólarhring:
Viðvörun: Búist er við stormi (meira en 20 m/s) norðvestantil og á annesjum norðaustanlands í dag, en einnig á Austurlandi á morgun.

Norðan- og norðaustan 18-23 m/s norðvestantil og á annesjum norðaustanlands í dag, en hægari vindur annars staðar. Norðaustan 18-23 m/s á morgun, en heldur hægari sunnanlands. Snjókoma eða slydda á norðan- og austanverðu landinu og talsverð ofankoma á Norðurlandi í dag, en á Austurlandi á morgun. Skýjað og úrkomulítið suðvestanlands. Hiti nálægt frostmarki víðast hvar.

þetta er bara nákvæmlega það sama og í gær! helvítis aumu veðurfréttamenn sem nenna ekki að flytja veðurfréttir almennilega..

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim