Kærleiksland

Trúarlega bloggið. Færslur þrisvar í viku, á sunnudögum, þriðjudögum og fimmtudögum kl. 21:03

föstudagur, maí 01, 2009

I. Ég er hér með kominn á þá skoðun að þetta núverandi blogg-template mitt sé forljótt og að ég þurfi að breyta því. Ég er að spá í rauðu bloggi með hvítum doppum. Nú eða svörtu bloggi með fjólubláum doppum. Eða appelsínugulu bloggi með himinbláum doppum. Eða e-ð.

II. Ég breytti enn og aftur heima hjá mér. Á morgun förum við Rikke að kaupa borðstofuborð því ég við erum með matarboð á morgun. Svo hendum við því örugglega bara þegar matarboðið er búið. Hahahaha!

III. Ég er hættur á leikskólanum. Það var erfiðara en ég bjóst við, enda er erfitt að hætta á skemmtilegum vinnustað þar sem maður er vel liðinn. Ég var líka pínu klökkur þegar ég var að kveðja börnin. Börnin MÍN! *snökt*

IV. Arizona. Havalina.

1 Ummæli:

  • Þann 11:49 e.h. , Blogger Egill sagði...

    Haloscan, þú ömurlega drasl. Þú hefur hér með misst viðskiptavin fyrir að vera of idíot-prúff

     

Skrifa ummæli

<< Heim