Kærleiksland

Trúarlega bloggið. Færslur þrisvar í viku, á sunnudögum, þriðjudögum og fimmtudögum kl. 21:03

laugardagur, júlí 30, 2005

ahhh þynnka..

í nótt dreymdi mig að eitthvað fólk hefði tekið sig saman og byggt geimfar úr gömlum útikömrum því það ætlaði að fljúga og búa við hliðiná sólinni því jörðin væri orðinn svo subbulegur staður.. mjöög djúpt alltsaman
djöfull langar mig að æla yfir allt núna og kveikja svo í húsinu mínu

nóatún er ekki á hringbraut

föstudagur, júlí 29, 2005

tvífarar vikunnar:


Dolph Lundgren


Robert Huth

má sosem deila um það, en samt... fyndið dót..

fimmtudagur, júlí 28, 2005

Börn undir 13 ára aldri eru meira óþolandi en ruslpóstur þegar kemur að internetinu.

Þessu komst ég að þegar ég fattaði að ég er með u.þ.b. 15 einstaklinga á msn block listanum mínum sem eru allir undir 13 ára aldri. Sumt e-ð kunningjafólk systkina minna sem hefur einhvernvegin komist yfir emailið mitt og sumt bara e-ð lið sem ég hef aldrei talað við eða séð á ævi minni... þetta væri kannski í lagi ef þau væru að segja e-ð af viti en yfirleitt er þetta bara "hæ áttu kærustu?" "hæ áttu dýr?" "hæ hvað ertu gamall? 20 ára? nauts ég trúi þér ekki!" og svo ef maður svarar ekki þá fær maður "halló? halló? halló? halló? HAAALLLÓÓÓ ERTU ÞARNA?!?!?"

það þyrfti að kenna einhverskonar internetsiðferði í skólum.. sveiattan

miðvikudagur, júlí 27, 2005

ja hérna.. allt að gerast.. búinn að redda mér miða á dæmið og á líka að skrifa um það fyrir www.kistan.is.. stuð!
ætti ég að treysta mér í það að þýða 300 blaðsíðna bók? hmmm

þriðjudagur, júlí 26, 2005

"Am I jumping the gun, Baldrick, or are the words "I have a cunning plan" marching with ill-deserved confidence in the direction of this conversation?"

afhverju er ég ekki breti?
það eru u.þ.b. 50.495.300 manns í heiminum svekktari en ég er núna.

Ég væri samt glaður ef einhver gæti reddað mér miða á Innipúkann
það er enginn í heiminum svekktari en ég er núna

ef einhver getur reddað mér miða á innipúkann þá væri það mjöööög vel þegið
Steik. Í bala. Fljúgandi bala. Með klaufar og hala. Og verður að litlum rauðum æðum sem eru að skríða út úr augunum á mér akkúrat núna. O_o o_O

ooOoOOoOOOOoooOOOOOOooooo

ég er farinn að sofa

sunnudagur, júlí 24, 2005

we know a place, where no spaceships go, we know a place, where no subs go, hey, no cars go

fimmtudagur, júlí 21, 2005

Hann Biggi Imsland er kominn með blogg.. hann er mjög góður gaur.. í álverinu (bætti við link á hann)

það er fyndið hvað börn breytast mikið þegar þau komast á unglingsárin.. og sum meira en önnur... t.d. einn gaur sem bjó við hliðina á okkur í mörg ár.. hann var rauðhærður og asnalegur og fór mikið í taugarnar á mér þar sem hann lagði litlu systur mína í einelti þrátt fyrir að vera 2-3 árum eldri en hún. Hann var s.s. svona týpískt biturt rauðhært hrekkjusvín.
Allavegana, þá sé ég hann oft núna á vappi í hverfinu, og á u.þ.b. hálfu ári hefur honum tekist að breytast úr 1,60 m rauðhærðum burstaklipptum lúða í 1,80 m síðhærðan dökkhærðan lúða í Megadeth og Slipknot fötum..

Það er líka annað.. ég hef aldrei fattað hvað það er sem ýtir börnum út í það að klæðast Slipknot/Korn/Megadeth/Metallica fötum og öllu þunglyndinu og leiðinlegri tónlist sem því fylgir. Ég man alveg hvernig það var að breytast í ungling, en ég minnist ekki þess að hafa fundið mig knúinn til að klæðast einhverjum ljótum þungarokksfötum og vera á móti öllu. Ég skellti bara hurðum (braut þær reyndar stundum, þegar angst-mælirinn hjá mér var alveg í hámarki) og var alltaf í fýlu út í foreldra mína.. lét það alveg nægja.

miðvikudagur, júlí 20, 2005

Mig langar að skjóta Lindsay Lohan með ryðguðum byssukúlum

þriðjudagur, júlí 19, 2005

jæja ég hef nú ákveðið að endurlífga b-myndagagnrýnina.. þar sem Krummi er kominn heim er það viðeigandi og við munum skiptast á að skrifa um myndirnar. Hér á eftir er fyrst fjallað um Ratboy (sá dómur er skrifaður af mér), og Campus Man (skrifað af Krumma)

Ratboy
------

Jæja ég veit ekki hvar ég á að byrja. Ég er ennþá í hálfgerðu losti eftir að hafa horft á þessa mynd. Ég mun allavegana aldrei aftur horfa á kvikmyndir sömu augum. Ratboy er s.s. mynd sem fjallar um strák sem lítur út eins og rotta (af einhverjum óútskýranlegum ástæðum), og hvernig hann spjarar sig í stórborg eftir hann er fangaður af einhverri gellu og bræðrum hennar (hann hafði búið einn á einhverjum ruslahaug fyrir það). Í fyrstu vorum við Krummi að búast við einhverskonar hjartnæmu Elephant Man ripoffi, en komumst fljótt að því að sú var ekki raunin. Í staðinn fengum við að sjá 100 mínútna langan saurklump sem fjallaði í raun ekki um neitt.
Myndin byrjar á því að aðalgellan bjargar Ratboy úr klóm einhverra vondra manna, og tekur hann undir sinn væng, með það að markmiði að græða pening á honum. Ratboy verður ástfanginn af þessari gellu sem er eiginlega alveg óskiljanlegt, þar sem hún er gjörsamlega sjarmalaus með öllu, og er basically óþolandi tík út alla myndina. Hún fer svo heim með hann, þar sem hann rústar öllu og gerir ekki neitt gáfulegt, meðan hún fer á milli staða og reynir að pimpa honum út hjá einhverjum kvikmyndapródúserum og blaðamönnum. Einhverntíman í myndinni fer hún svo með hann í partí hjá einhverjum hotshot gaurum, þar sem hann týnist, og fer svo og lendir í ýmsum, og ótrúlega ómerkilegum ævintýrum í borginni, þar sem hann meðal annars kynnist einhverjum svörtum gaur með bleik sólgleraugu. Myndin breytist þá á tímabili í Boyz 'n the hood + Ratboy þar sem m.a. er prangað inn á ratboy einhverju bling bling drasli fyrir allan vasapeninginn hans.
En hann finnur svo aðalgelluna aftur just in time fyrir einhvern blaðamannafund sem hún er búinn setja upp fyrir hann. Þar nær kvikmyndin líklega hápunkti í kjaftæði, þar sem í staðinn fyrir að vera með honum á sviðinu að kynna hann fyrir fólkinu, ákveður hún af einhverjum stórfurðulegum ástæðum að senda hann einan fram á sviðið til að flytja einleik úr einhverju leikriti. Það er eiginlega mjög erfitt að lýsa í orðum hversu óendanlega handahófskennd, asnaleg, og tilgangslaus þessi sena er, og maður verður eiginlega að sjá þetta með eigin augum til að skilja það. Hann gengur svo nattlega berserksgang á sviðinu og rústar öllu, og þegar hann er að flýja úr leikhúsinu kemur enginn annar honum til bjargar en svarti gaurinn með sólgleraugun, og fer e-ð að tala um flótta til Mexíkó og einhverja þvælu sem meikar nákvæmlega ekkert sense útfrá undangengnum atburðum. Myndin endar svo á álíka súrum nótum með því að hann er skotinn af löggunni og e-ð bull sem ég nenni ekki að skrifa um.
Manni var eiginlega skítsama um allar persónur í þessari mynd, þar sem aðalmarkmið þeirra allra virtist að vera sem mestir fávitar við aumingja Ratboy, eða "Eugene" eins og hann var kallaður. Undir venjulegum kringumstæðum hefði þetta þá líklega vakið upp einhverja samkennd með honum, en þar sem hann var algjörlega litlaus persóna sem gerði í raun ekkert annað en að ráðast á fólk á 5 mínútna fresti og að biðja fólk að lesa fyrir sig, þá var manni eiginlega alveg sama þó fólk væri að segja honum hvað hann væri ljótur og ógeðslegur.
Og líklega felst boðskapur þessarar myndar í því, að fólk þarf endilega ekki að vera eitthvað fallegt að innan þó það sé ljótt að utan. Það getur mjög auðveldlega verið bæði, og að kvikmyndir um slíkt fólk eru aldrei góð hugmynd.
Ég ætla ekki að fjalla um leik + leikstjórn, eitthvað sérstaklega, heldur læt bara nægja að segja að það var alltsaman ömurlegt, f. utan kannski það að Ratboy leit alveg út fyrir að vera Ratboy.

Niðurstaðan er því: án efa lélegasta mynd sem ég hef á ævi minni séð, en mæli þó með henni þar sem það er mjög auðvelt að skemmta sér yfir ömurleika hennar.

10 saurklumpar af 10. Mjöööög auðveldlega


Campus Man (Skrifað af Krumma)
---------------------

¨All The Girls wanted to take Brett Wilson home: But his best friend just wanted to take him to the Bank!¨

Eða eins og þetta útleggst á íslensku aftan á hulstrinu:

¨Allar stelpur vilja verða samferða Brett Wilson heim. En vinir hans vilja hinsvegar verða samferða honum í bankann.¨

Já, það er komið að mínu innleggi í B-mynda gagnrýninni sem Egill hóf á bloggi sínu fyrir nokkru.

Todd Barrett hefur hlutina á hreinu. Hann er upprennandi viðskiptafræðinemi með auga fyrir góðum hugmyndum. En lífið er ekki alltaf dans á rósum fyrir Todd og verður útlitið svart þegar það lítur út fyrir að hann geti ekki átt fyrir skólagjöldunum þessa önnina. En Todd deyr sko ekki ráðalaus. Hann hannar meö hjálp tölvunar sinnar viðskiptaplan sem getur ekki brugðist. Hann ætlar að búa til dagatal, en í staðin fyrir lögulegar konur á síðum þess mun hann, get this, hafa lögulega karlmenn! Þeta plan getur ekki mögulega feilað þar sem að þetta hefur ALDREI verið gert áður.
Þarna stígur Brett Wilson, besti vinur Todds inn í myndina. Brett er meitlaður sundkappi með gullhjarta sem vill ekkert frekar en að fá að stunda íþróttagrein sína í friði. En það ætlar Todd sko ekki að leifa honum að gera og upphefst skondin atburðarrás þar sem allt fer í bál og brand hjá honum Todd okkar og koma litríkar persónur við sögu á borð við lánadróttin Todds, Cactuz Jack sem er harðastin naglinn á svæðinu..

Ok, ég fíla ömurlegar eigties gamanmyndir jafn mikið og næsti maður. Ferris Bueller´s day off og Fast times at Ridgemont High eru sígildar myndir. Campus man er ekki sígild á nokkurn hátt. Hún er hinsvegar
sæmilega þolanlegur saurklumpur sem inniheldur nægilegt magn ömurleika til að skemmta manni í c.a. 90 mínútur. Það er ekki endilega að myndin sé slík sé svona illa gerð, heldur er það meira að allur 9. áratugurinn er óumdeilanlega ömurlegt tímabil og allt sem keyrir út á hann verður því i framhaldi af því smitað af þeim ömurleika.

Allt í Campus Man er gegnumsýrt af þessu harmatímabili nútímasögunnar. Allt frá fáránlegum hárgreiðslum til karlmanna í allt of litríkum/þröngum/stuttum fötum...And not in a man-loving good way..
Það er reyndar ótrúlega mikið af hómóerótískum undirtónum í þessari mynd. Maður sér ófáa nakta karlmannslíkamana í eggjandi stellingum út ín gegn, oftar en ekki að sturta sig eða olíubornir í eggjandi stellingum. Ég veit það ekki, kannski eldist þessi mynd vel í því samhengi þar sem hómóerótík virðist almennt ennþá vera föst á 9. áratugnum....

Allavegana..

Hvað er annars málið með trommurnar í eighties myndum? Kom alltaf inn geðveikt massívar eigties trommur í byrjuninni á hverri einustu kvikmynd frá þessu tímabili. Ég veit ekki hvort þið náið hvað ég eigi við en ég held að þessar trommur séu ennþá til staðar í byrjuninni á Bold and the Beautiful theminu.

Allavegana. Þetta er einhvernvegin alltaf eins notað í byrjuninni á öllum vondum eigties gamanmyndum og er Campus Man engin undantekning. Þetta virðist þjóna þeim tilgangi að sýna hversu frábært er að vera uppi á þessum áratugi.

*Dúm*Dúm*Dúm*

Kvenmansrass í þveng

*Dúm*Dúm*Dúm*

Stelpa með ljót sólgerlaugu að bera sólkrem á sig

*Dúm*Dúm*Dúm*

Gaurar í þröngum gallabuxum og hvítum jakkapeysum að high fiva hvorn annan

*Dúm*Dúm*Dúm*

Fólk a hjólaskautum

*Dúm*Dúm*Dúm*

Einhver önnur kynferðislega niðurlægjandi mynd af kvenmönnum.

Reyndar var hálf nöktu kvenmönnunum skipt út fyrir hálfnakta karlmenn í flestum tilfellum en það er besides the point.
Punkturinn er að þetta var ömurlegur áratugur hvernig sem á það er litið!

Allavegana þá er Todd Barrett ótrúlega fráhrindandi og ömurleg persóna sem maður hefur enga samúð með og í raun vonaði ég að Cactuz Jack mundi misþyrma honum alvarlega á einhverjum tímapunkti í myndinni en alas, it was not to be.

Talandi um Cactuz Jack, eina eiginlega vonda kall sögunnar þá var hann álíka ógnvekjandi og Calvin Cline nærfatamódel sem hann hefur vafalítið verið áður en að þessu kvikmynd gerði hann atvinnulausan..

Hann var samt harður..eða eins og hann sagði sjálfur ¨When the tough come togeather they call me boss.¨

Allavegana þá er manni skítsama um allar mismunandi ráðagerðir Todds (sem flestar enda í að rústa eigin lífi og allra í kring um hann), en hann virðist samt fá vonda hugmynd á 5 mínútna freksti og er smekkleg montage sena fyrir hvert og eitt einasta.
Ef þið vitið ekki hvað montage sena er þá skal ég leifa Matt Stone og Tray Parker að útskýra það fyrir ykkur í þessum lagatexta úr Team America:

The hour's approaching to give it your best / You've got to reach your prime / That's when you need to put yourself to the test / And show us the passage of time / We're gonna need a montage / Ooh, it takes a montage / Show a lot of things happening at once / Remind everyone of what's gone on / In every shot, show a little improvement / To show it all would take too long / That's called a montage / Ooh, we want a montage / In anything, if you want to go / From just a beginner to a pro / You need a montage / Even Rocky had a montage

Það er s.s. ein ömurleg montage sena í hverri einustu vondu eighties gamanmynd sem gerð hefur verið en Campus Man sættir sig ekki við það, nei, hún þarf að hafa minnst 10 slíkar senur til að sjá allar þessar frábæru ráðagerðir Todds í framkvæmd.

Jæja, það er fátt meira hægt að segja um þessa ömurlegu mynd. Hún er ekki nógu ömurleg til að geta skemmt manni allan tíman en 9. áratugurinn ætti samt að koma manni langt, og ef að maður fær leið á því má vel skemmta sér við að finna þýðingavillur í textanum og á hulstrinu, af nógu af taka þar.

7 saurklumpar af 10. Lækkar örlítið fyrir skort á kvenmansnekt sem heldur öðrum ömurlegum eighties myndum uppi..

mánudagur, júlí 18, 2005

Hann Hjörleifur góðvinur minn var að komast inn í arkitektúrskóla í Svíþjóð þar sem hann verður við nám næstu 5 árin. Þó hans verði sárt saknað hér á klakanum þá samgleðst ég honum mjög (og eins gott að þið sem lesið þetta gerið það líka).
Til hamingju Hjölbert!

Svo er hún Auður systir líka komin til Spánar og verður þar næsta mánuðinn.. það eru allir alltaf að fara eitthvert.. helvítis vesen

föstudagur, júlí 15, 2005

Þegar ég var 16 ára pjakkur vann ég sem uppvaskari á Café Óperu. Það var voðalegt púl en samt ágætisdjobb og ágætlega borgað því það eru voða fáir sem nenna e-ð að vaska upp. Ég bjóst líka við því að verða hækkaður í tign eftir að hafa sannað mig, eins og Jói Palli vinur minn hafði gert, og farið að vinna við að gera eftirrétti eða e-ð. Einn daginn bað einn þjónninn, sem hét Jói og var mjög vinalegur, mig að sækja rjómasprautu fyrir sig og koma með fram í sal. Ég sagðist myndu gera það. En vandamálið var að þar sem ég var uppvaskari þá hugsaði ég líka sem slíkur, og vissi bara hvar tómar rjómasprautur væri að finna. Þannig að ég fór og sótti eina þannig og skrúfaði líka hausinn af til að auðvelda fyrir honum, því ég hélt af einhverjum bjánalegum ástæðum að hann ætlaði að setja rjóma í sprautuna frekar en að sprauta rjóma í e-ð. Ég fór fram með sprautuna og lét hann hafa hana, en þegar hann svo ætlaði að sprauta rjóma í kaffið sem hann var með (sem auðvitað var tilgangurinn), datt spraututappinn ofaní kaffið, og hver einasti kaffidropi skvettist yfir fína þjónaoutfittið hans. Það síðasta sem ég man er svo einn kokkurinn að ýta mér inn í eldhús til að koma í veg fyrir að þessi vinalegi þjónn myrti mig.
Ég útilokaði allan frama í matsölustaðabransanum eftir þetta.

fimmtudagur, júlí 14, 2005

jeg var stoppaður af löggunni áðan.. fyrir að virða ekki einhverja stöðvunarskyldu.. eina stöðvunarskyldan í borginni sem ég virði ekki (þar sem hún er algjörlega tilgangslaus og óþarfi), og ég er stoppaður einmitt þar.. kaldhæðni er asni.

og hverskonar bjánar framleiða sykurlaust súkkulaði? Það ætti að vera mannréttindabrot.
djöfull voru bjarnabófarnir kúl. Þeir voru alltaf með grímur og hétu kúl nöfnum eins og 176-761 og 176-167.

Héðan í frá vill ég að allir kalli mig 413-341.
Jæja þar sem ég er í 2 vikna letifríi er það óhjákvæmilegt að svefnklukkan hjá me´r fari til fjandans.. og það er einmitt það sem er að gerast núna. Fyrsta skiptið í alveg hálft ár eða svo. Og þar sem tölvan mín er biluð get ég ekki hangið bara í henni þangað til ég sofna á lyklaborðinu.. Þið kunnið þá að spyrja "en Egill, afhverju hangiru bara ekki í tölvunni sem þú ert í núna?". Svarið við því er einfalt. Þar sem þetta er tölva móður minnar er voða fátt sem hægt er að finna sér til dundurs (dundurs.. haha). Þá kunnið þið að segja "en Egill, afhverju vafraru bara ekki um á veraldarvefnum og skoðar áhugaverðar heimasíður" en þá kynni ég að segja "afhverju eruð þið að nota orð eins og "vafra" og "veraldarvefnum"?. Það eru asnaleg orð sem gamalt fólk og Mörður Árnason nota." en til að svara fyrri spurningunni þá myndi ég líklega svara "því mér finnst voða fáar síður áhugaverðar, enda er ég kröfuharður maður sem veit hvað hann vill".
Núna kynnuð þið, lesendur góðir þá að spyrja "en Egill, afhverju ertu að teygja lopann svona rosalega og gera þessa færslu jafnömurlega leiðinlega og hún er orðinn? Heldur þú að hinn almenni blogglesandi hafi áhuga á að lesa þig rífast við sjálfan þig?" og þá myndi ég svara "jah mér er nú bara alveg sama þar sem sá hópur sem les bloggið mitt er 90% vinir mínir og afgangurinn einhverjir bretar/kanar/ítalir/ástralir/babar sem skilja hvort sem er ekki íslensku. Og vinir mínir hafa ekkert betra með tímann sinn að gera enda má margt læra af því að lesa einhvern rífast við sjálfan sig." þá kynnuð þið að spyrja "en Egill, afhverju ertu með svona stórt nef?" sem myndi´þó særa mig mikið en ég myndi svara "því unglingsárin fóru illa með mig og breyttu mér í það sálarlausa og ljóta skrímsli sem ég er í dag." og þá mynduð þið líklega spyrja "en Egill, afhverju ertu með svona stóran munn?" og ég myndi þá svara "hey ég er allavegana ekki með jafnstóran munn og Steve Tyler" og þá mynduð þið svara "ok".

Þeir sem nenntu að lesa þetta allt fá medalíu og heiðursplagg frá mér.


Ukelele rokka... ljót sólgleraugu og ofnæmislyf líka.

miðvikudagur, júlí 13, 2005

jossossossss þá er maður bara á leiðinni í sirkus með Steve McCurry og öllum hinum ljósmyndurunum. Einum frönskum og einum frá mongólíu það eru rauðar doppur og bláar á músamottunni minni, og ég er viss um að Robert J. Sternberg væri mér ekki sammála, enda hefur hann heldur ekki stokkið fram að 36 metra háu bjargi svo ég eða nokkur annar viti sem lifði það af. Sá sem lifði það svo af velti því hinsvegar oft fyrir sér í mörg ár hvort það væri sniðugra fyrir óperugesti að nota sjónauka eða einglyrni? En með hverju eiga þeir þá að klóra sér? Það skiptir ekki máli, enda er allt að fyllast ef eskimóum. Eskimóar hvert sem maður horfir, og svo langt sem augað eygir, eða teygir. Eða slitnar.

djöfull er gaman að sóa tíma fólks (s.s. ykkar)...
úff... var að koma af Sin City.. með flottari myndum sem ég hef séð lengi.. og djöfull var Elijah Wood óendanlega creepy í henni

jæja svefn

mánudagur, júlí 11, 2005

Djöfull er ég pirraður útí Pro Evolution Soccer 4. Ég hélt það væri ekki hægt að verða svona pirraður út í tölvuleik... but I was wrong. Ég hefði aldrei átt að kaupa hann í fríhöfninni. Og svo hata ég jólin.

Annars er ég kominn í tveggja vikna frí núna og veit ekkert hvað ég á með mig að gera. Allar uppástungur eru velkomnar. En samt misvelkomnar.
Þessvegna var ég að kveðja mörg börnin á leikskólanum núna á föstudaginn þar sem þau eru mörg að fara í sumarfrí og ég verð hættur þegar þau koma aftur. Það var mjög dramatísk stund, en þó aðallega fyrir mig frekar en þau, því 3 ára börn vita alveg voðalega lítið hvað er að gerast í kring um þau. Hnuss >:-|

sunnudagur, júlí 10, 2005

jöss bloggið er komið í lag.. þökk sé auði (held ég) núna nenni ég kannski að skrifa e-ð almennilega um hróaskelduferðina á næstunni..

fimmtudagur, júlí 07, 2005

sko þetta vesen með bloggið er virkilega farið að pirra mig.. gæti einhver sagt mér hvernig ég á að laga þetta.. ég nenni ekki að læra það sjálfur.. annaðhvort það eða bara að skipta alveg um template...

þriðjudagur, júlí 05, 2005

úfff.. Fiery Furnaces og Cat Power á airwaves í ár... og svo hljómsveitin með heróíngaurnum þarna... þetta verður ekki leiðinlegt
Ahhh þá er maður kominn heim... búið að vera frábær ferð o.s.frv... það gerðist eiginlega of mikið til að ég nenni að segja ferðasögu á blogginu, en þið sem nennið kíkið bara í heimsókn og fáið að sjá myndir o.fl.

Ég set kannski myndir á síðunna á næstunni en í bili læt ég bara duga þessa mynd sem mér finnst lýsa hátíðinni vel í einum ramma:


takið vel eftir hversu eurotrashlegur kiddi er með þetta hljómborð, og þessum óendanlega ljótu sólgleraugum hans Hjölla